Þegar Dalamenn ganga að kjörborðinu bíður þeirra að velja milli fimm hundruð og þrjátíu nafna. Fjórir frambjóðendur gáfu kost á sér á framboðsfundi í gærkvöld.Það var persónulegur og einlægur bragur á framboðsfundinum í Dalabúð, enda skipta þar persónurnar höfuðmáli.Í sjö sveitarfélögum á landinu barst enginn framboðslisti fyrir sveitarstjórnarkosningar svo þar fara fram óbundnar kosningar. Hvergi eru fleiri á landinu í framboði en í Dalabyggð.Þar eru 534 á kjörskrá.„Það eru allir kjörgengir sem eru heilir og hraustir og undir 65 ára. Að vísu er hægt að skorast undan. Þeir sem hafa verið í sveitarstjórn geta skorast undan jafn mörg kjörtímabil og þeir hafa setið í sveitarstjórn. Þannig það eru ansi mörg nöfn sem koma til greina,“ segir Bergþóra María Jónsdóttir, kjörnefndarmaður í Dalabygg