Tuttugu ár eru liðin frá því breski fjölmiðillinn BBC gerðist uppvís að einum umtöluðustu mistökum í sögu beinna útsendinga. Þá kom þangað maður sem var á leið í atvinnuviðtal, en hann endaði á því að rata óvart í beina útsendingu fréttatíma þar sem hann var ranglega kynntur sem sérfræðingur í tæknimálum.Þann 8. maí árið 2006 lagði viðskiptafræðingurinn Guy Goma leið sína í höfuðstöðvar breska ríkisútvarpsins BBC þar sem honum hafði boðist atvinnuviðtal. Hann sóttist þá eftir starfi í upplýsingatæknideild fyrirtækisins.Þegar þangað var komið ruglaði starfsmaður stöðvarinnar Goma saman við fjölmiðlamanninn Guy Kewney sem sérhæfði sig í fréttum sem snerust um tækni og var ætlað að ræða nýfallinn dóm í máli sem tengdist Apple í fréttatíma kvöldsins.Goma var því leiddur inn í sjónvarpssal og b