Troels Lund Poulsen, leiðtogi hægriflokksins Venstre, hefur fengið stjórnarmyndunarumboð í Danmörku. Hann hefur þegar rætt við miðjuflokkinn Moderaterne og Íhaldsflokkinn.Friðrik Danakonungur boðaði leiðtoga allra flokka sem eiga sæti á þingi landsins á sinn fund í kvöld. Hann fól Poulsen að leiða stjórnarmyndunarviðræður án Jafnaðarmannaflokksins og Moderaterne. Poulsen er þó ekki bannað að ræða við þessa flokka vilji hann það.Fjörutíu og fjórir dagar eru frá þingkosningum og aldrei áður hefur tekið jafn langan tíma að mynda stjórn. Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna, fékk stjórnarmyndunarumboðið eftir kosningar en tókst ekki að mynda stjórn.Lars Lökke Rasmussen, leiðtogi Moderaterne, sleit viðræðunum í dag og stakk upp á því að Troels Lund Poulsen fengi stjórnarmyndunarumboð.