Matvælastofnun hefur ákveðið að kæra viðskiptavin vegna ógnandi hegðunar. Forstjórinn segir of algengt að starfsfólk verði fyrir hótunum í málum sem tengjast dýravelferð og að ákveðið hafi verið að leita til lögreglu til að tryggja betur öryggi þess. Dæmi séu um að ráðist hafi verið á starfsfólk með barefli.