Ungliðar Miðflokksins í Mosfellsbæ koma myndbandi flokksins til varnar en þar mátti sjá ungan miðflokksmann veita pólitískum andstæðingi sínum kjaftshögg. Þeir segja myndbandið vísun í þekkt „meme“ og tölvuleikjamenningu. Þeir taka fram að oddvitar meirihlutans, sem fordæmdu myndskeiðið, séu ótengdir unga fólkinu í bæjarfélaginu.