Áhöfn björgunarskipsins Bjargar á Rifi var kölluð út fyrr í dag vegna fiskibáts sem var orðinn aflvana í miðjum Breiðafirði, um 15 sjómílur norður af Rifi.Þetta segir í tilkynningu Slysavarnafélagsins Landsbjargar.Skipið þurfti aðstoð til að komast til hafnar eftir að bilun kom upp í gír skipsins. Fjórir voru um borð í skipinu en samkvæmt tilkynningunni var engin aðkallandi hætta á ferð. Veður var ágætt og rólegur vindur af suðvestri.„Björg fór úr höfn á Rifi rétt fyrir klukkan hálf fjögur í dag og rétt um 40 mínútum síðar var búið að taka skipið í tog og stefnan sett inn til Ólafsvíkur þangað sem komið var rétt fyrir klukkan 19 í kvöld,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að vel hafi gengið að koma skipinu að bryggju. Björg hafi verið komin til hafnar á Rifi um fimmtán mínútum síðar þar sem