Drög að frumvarpi um rannsóknarnefnd um Bakkakot og fleiri vistheimili eru á lokametrunum og voru kynnt lögmanninum í Stjórnarráðinu í morgun.Bjarki Heiðar Bjarnason, lögmaður Bakkakotsmanna, líst ágætlega á frumvarpsdrögin en sá strax nokkuð sem þyrfti að laga. ÞURFA AÐGANG AÐ LÖGREGLUSKÝRSLUM OG ÁVERKAVOTTORÐUM „Það þurfa að vera þarna mjög skýrar heimildir að okkar mati. Til dæmis að það megi nýta lögregluskýrslur og að nefndin geti kallað eftir lögreglugögnum og ýmsum heilsufarslegum upplýsingum, áverkavottorðum og þess háttar sem eru þannig úr garði gerð að þau geta upplýst um það sem gerðist og það tjón sem umbjóðendur okkar hafa orðið fyrir.“Bjarki er bundinn trúnaði um það sem er í frumvarpsdrögunum en til stendur að leggja frumvarpið fram á Alþingi á yfirstandandi þingi, til þe