Ein áhrifamesta manneskja samtímans, David Attenborough, er hundrað ára í dag.Attenborough hefur verið andlit og rödd sjónvarpsþátta um náttúru og dýralíf frá því á sjötta áratugnum og er mikill baráttumaður fyrir umhverfinu.Yfir fjörutíu dýra- og plöntutegundir hafa verið nefndar eftir honum og hann hefur unnið til fjölda verðlauna auk þess að vera tvívegis sleginn til riddara.Attenborough er afar hógvær maður, að sögn samferðafólks, og var mjög skýr um hvað honum fannst um afmælisfögnuðinn: Því minna því betra.Alastair Fothergill, samstarfsmaður Attenborough til margra ára, segir Attenborough alltaf hafa sagt: „Dýrin eru stjörnurnar, ekki ég.“