Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segist „auðvitað hafa íhugað það“ að einhver reyni að ná höggi á sig með því að vekja athygli á kreditkortafærslum hennar. Hún vill ekki svara því hvort hún telji andstæðinga eða jafnvel samflokksmenn sína standa þar að baki. Heiða segist ekki íhuga stöðu sína vegna málsins.