Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir ekki lengur þurfa að grípa ítrekað í neyðarhemla því engin bið sé eftir fíkni- og hegðunarmeðferð fyrir börn. Nýtt meðferðarheimili að Lækjarbakka í Gunnarsholti var opnað í dag.Ekkert barn bíður eftir meðferð, segir mennta- og barnamálaráðherra. Nýtt meðferðarheimili fyrir drengi í vímuefnavanda var opnað á Rangárvöllum í dag.„Þessum tíma er lokið. Þessum ófremdartíma,“ sagði ráðherra við opnunarathöfnina í dag FYRIR DRENGI OG KYNSEGIN Á heimilinu er pláss fyrir sex og nú dvelur þar einn. „Þessi meðferð er ætluð drengjum og kynsegin einstaklingum á aldrinum 13-18 ára. Sem eru með alvarlegan vímuefnavanda eða ofbeldisbrot í sinni sögu. Hegðunarerfiðleika og slíkt,“ segir Dögg Þrastardóttir félagsráðgjafi og forstöðumaður Lækjarbakka.Mikil á