Í mars fluttist ég tímabundið til Nuuk á Grænlandi. Í flugvélinni á leiðinni horfði ég yfir snævi þakinn Grænlandsjökul og pírði augun til að koma auga á ísbirni þótt ég vissi mætavel að slíkt væri ansi langsótt. Við fengum fallegt aðflug, Nuuk-fjörðurinn var prýddur fallegum ísjökum og hvítum rákum eftir bátana sem sigldu inn og út fjörðinn. Í fyrradag voru...