Um 250 tónlistarmenn á Suðurlandi koma fram á tónleikum í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi um helgina. Með tónleikunum er verið að heiðra Björgvin Þ. Valdimarsson, tónskáld og kórstjóra, sem varð nýlega 70 ára. Þekktasta lag hans er „Undir dalanna sól”.Æfingar hafa staðið yfir af fullum krafti síðustu vikur og allt gengið samkvæmt áætlun. Karlakór Selfoss, Karlakór Rangæinga, sönghópurinn Öðlingar og kirkjukórar Selfosskirkju, Breiðabólsstaðarprestakalls og Odda- og Þykkvabæjarkirkju koma fram, ásamt einsöngvurunum Alexander Jarli Þorsteinssyni, Dísellu Lárusdóttur, Gunnlaugi Bjarnasyni og Einari Þór Guðmundssyni, að ógleymdri Sinfóníuhljómsveit Suðurlands þar sem Guðmundur Óli Gunnarsson er hljómsveitarstjóri.Tónleikarnir fara fram á laugardaginn í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi og eru afmælist