Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Leiðtogar allra flokka á fund Danakonungs í kvöld

Friðrik Danakonungur hefur boðað leiðtoga allra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á þingi landsins á sinn fund í kvöld, einn í einu.44 dagar eru frá þingkosningum og aldrei áður hefur tekið jafn langan tíma að mynda stjórn. Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna, fékk stjórnarmyndunarumboðið eftir kosningar en hefur ekki tekist að mynda stjórn.Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi miðjuflokksins Moderaterne, sleit viðræðunum í dag og stakk upp á því að Troels Lund Poulsen, leiðtogi hægriflokksins Venstre, fái stjórnarmyndunarumboð. Hann segir þurfa að breyta um stefnu í viðræðunum en útilokar ekki að Frederiksen verði áfram forsætisráðherra. EPA / Emil Nicolai Helms
Leiðtogar allra flokka á fund Danakonungs í kvöld

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta