Vivian Motzfeldt, fyrrverandi utanríkisráðherra Grænlands, er gengin í stjórnarflokkinn Demokratiit. Hún sagði skilið við stjórnmálaflokkinn Siumut eftir að hann sagði sig frá grænlensku landstjórninni í mars á þessu ári.Við það tapaði Motzfeldt stöðu utanríkisráðherra. Hún sagði þá að Siumut hefði, með því að segja sig úr stjórninni, tekið ákvörðun um að útiloka sig frá pólitískum völdum á Grænlandi.KNR, ríkisútvarp Grænlands, greinir frá.Motzeldt hafði verið meðlimur í Siumut í meira en 20 ár þegar hún gekk úr stjórnmálaflokknum. Hún tilkynnti á Facebook-síðu sinni að hún væri gengin til liðs við Demokratiit.„Ég mun vinna eftir þeim gildum sem ég hef séð í ykkar pólitíska starfi. Kærar þakkir fyrir móttökurnar, ég hlakka mikið til samstarfsins,“ skrifar Motzfeldt.Með færslunni fylgir myn