Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hátíðahöld á sigurdeginum lágstemmdari en áður af ótta við árásir

Sigurdagurinn 9. maí er haldinn hátíðlegur í Rússlandi og fleiri fyrrum Sovétríkjum ár hvert þegar sigurs á nasistum í seinni heimsstyrjöld er minnst. Miklar hersýningar hafa verið haldnar þennan dag í valdatíð Pútíns, þar sem þúsundir hermanna hafa tekið þátt og ýmis vopn verið til sýnis. Hátíðahöldin á morgun verða þó öllu lágstemmdari en síðustu ár vegna drónaárása Úkraínumanna.Engin hernaðarleg farartæki, eins og skriðdrekar, verða til sýnis við hátíðarhöldin á morgun. Í fyrra voru 11.000 hermenn og 200 hernaðarleg farartæki til sýnis og um 30 þjóðarleiðtogar mættu. Aðeins er búist við þremur í ár, frá Belarús, Laos og Malasíu.Varnarmálaráðuneyti Rússlands hefur ekki gefið út hve margir hermenn taka þátt í hersýningunni í ár, segir útlægi rússneski fjölmiðillinn The Moscow Times. Þá se
Hátíðahöld á sigurdeginum lágstemmdari en áður af ótta við árásir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta