Hilmar Veigar Pétursson, einn stofnenda og forstjóri Fenris Creations, áður CCP Games, kom að áhugaverðu verkefni í Bretlandi: könnun á möguleikum þess að varðveita David Attenborough í stafrænni útgáfu með einhverjum hætti.Attenborough fagnar 100 ára afmæli sínu í dag. Hann er af mörgum talinn einn áhrifamesti maður samtíðarinnar. Hann hefur starfað við sjónvarp í fjölda áratuga og er í dag þekktur sem aðgerðasinni og fyrir náttúrulífsþætti.David Attenborough yrði ekki sá fyrsti til að vera endurlífgaður með stafrænum hætti. Einn áhrifamesti myndasöguhöfundur allra tíma, Stan Lee, hefur til að mynda verið endurgerður með gervigreind. Hinn stafræni Stan er fluttur ráðstefna á milli þar sem aðdáendur geta spurt hann spurninga.Stafrænar endurgerðir af þekktu fólki eru ekki alveg nýjar af nál