Tjaldur nokkur hefur gert sig heimakominn fyrir utan rafiðnaðarverslunina Reykjafell á Blikastaðavegi í Reykjavík.Að sögn Jóhanns Stefánssonar, sölumanns og ráðgjafa Reykjafells, hefur fuglinn ítrekað lagt leið sína í verslunina síðustu daga. Hann segir tjaldinn flögra um í tilraun til þess að komast inn, þó án árangurs.Starfsmenn verslunarinnar hafa hringt í fuglavernd vegna tjaldsins og leitað ráða. Jóhann segir fuglavernd hafa lagt til að sett yrðu gluggatjöld utan á húsið. Sú hugmynd hefur hins vegar ekki fengið hljómgrunn meðal starfsmanna.Fuglinn virðist áttavilltur og hefur í nokkur skipti flogið á glugga búðarinnar sem sýna spegilmynd umhverfisins, segir Jón. Þá séu för eftir hann á glerinu.Tjaldur hefur gert sig heimakominn fyrir utan rafiðnaðarverslunina Reykjafell á Blikastaðave