Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bonnie Tyler haldið sofandi eftir bráðaaðgerð

Velsku söngdívunni Bonnie Tyler er haldið sofandi á sjúkrahúsi í Faro í Portúgal.Tyler, sem er 74 ára og býr í Portúgal, var lögð inn á sjúkrahús á miðvikudag. Hún þurfti að gangast undir bráðaaðgerð á þörmum og ákváðu læknar að henni skyldi haldið sofandi á meðan hún næði bata.„Við vitum að þið óskið henni alls hins besta og biðjum um næði á þessum erfiðu tímum,“ er haft eftir talsmanni Tyler í samtali við The Guardian. Hann segir aðgerðina hafa gengið vel og að von sé á frekari upplýsingum um heilsufar söngkonunnar fljótlega.Bonnie Tyler heitir réttu nafni Gaynor Hopkins. Hún skaust hratt upp á stjörnuhimininn á níunda áratugnum í kjölfar útgáfu smáskífunnar Total Eclipse of the Heart sem vermdi lengi vinsældalista í Bretlandi og Bandaríkjunum.Til stendur að Tyler hefji tónleikaferðalag
Bonnie Tyler haldið sofandi eftir bráðaaðgerð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta