Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir notkun sína á innkaupakorti sem hún hefur til umráða í störfum sínum eðlilega og í samræmi við reglur Reykjavíkurborgar. Eðlilegt sé að gerðar séu athugasemdir við færslurnar og óskað sé eftir fullnægjandi gögnum „Og ég hef ekki upplifað neitt annað en að engar efasemdir séu um að ég sé að fara rétt með þetta kort. Það hefur aldrei komið upp nein umræða um það,“ bætir hún við. EKKERT ATHUGAVERT VIÐ NOTKUN HENNAR Á KORTINU Starfsfólk Reykjavíkurborgar hefur ítrekað gert athugasemdir við notkun Heiðu Bjargar á kortinu, bæði skriflegar og munnlegar. Óskað hefur verið eftir nánari skýringum á færslum og henni leiðbeint um rétta notkun á kortinu. Heiða hefur notað kortið fyrir 753 þúsund krónur síðan hún tók við embætti í febrúar í fyrra og notað þ