Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna í Danmörku, fer á fund Friðriks Danakonungs klukkan 15:30 í dag, að íslenskum tíma. Erfiðlega hefur gengið að mynda ríkisstjórn í landinu og 45 dagar eru liðnir frá þingkosningum. Frederiksen fer með stjórnarmyndunarumboðið.Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterne, tilkynnti í dag að hann vilji að Troels Lund Poulsen, leiðtogi hægriflokksins Venstre, leiði viðræðurnar í stað Frederiksen.Aldrei hefur tekið svo langan tíma í Danmörku að mynda ríkisstjórn. Tímamet var sett 2022 þegar stjórnarmyndum tók 44 daga.Mette Frederiksen var forsætisráðherra á síðasta kjörtímabili.EPA / EMIL HELMS