Samföngum Ghislaine Maxwell, fyrrverandi kærustu og aðstoðarkonu Jerffreys Epstein, var refsað fyrir að kvarta yfir því að hún hefði verið sett í sama lágmarksöryggisfangelsi og þær. Nokkrar konur voru fluttar í verra fangelsi eftir að þær tjáðu sig um veru Maxwell í fangelsinu og voru skammaðar af yfirmanni fangelsisins, þótt reglur fangelsisins leyfðu þeim tæknilega séð að tjá sig við fjölmiðla.