Fjöldi landsmanna er kominn yfir 395 þúsund. Þeim fjölgaði um 520 á fyrsta ársfjórðungi. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Hagstofu Íslands. Karlar voru í meirihluta, eða yfir 202 þúsund á móti rúmlega 192 þúsund konum. 230 einstaklingar voru skráðir kynsegin eða annað.Erlendir ríkisborgarar voru 70.650 eða 17,9% af heildarfjölda.Meirihluti landsmanna var búsettur á höfuðborgarsvæðinu, eða rúmlega 252 þúsund á móti yfir 142 þúsund á landsbyggðinni.RÚV / Ragnar Visage