Árni Matthíasson skrifar:Hljómsveitin RetRoBot sigraði í Músíktilraunum 2012 með tónlist sem gagnrýnandi Morgunblaðsins kallaði rafbundið nýbylgjurokk þó rokkið hafi verið í aftursætinu og tölvuþórinn Daði Freyr Pétursson við stýrið. Hvað sem öllum skilgreningum leið þá var tónlistin skemmtilegur bræðingur og grípandi eins og heyra mátti á plötunni Blackout sem kom út ári síðar, en sveitin lagði upp laupana ekki löngu eftir það.Á nýrri breiðskífu Daða Freys Péturssonar fetar hann svipaða slóð og á síðustu plötum, en tónlistin er þó fjölbreyttari og skemmtilegri en nokkru sinni að mati Árna Matthíassonar sem gefur plötunni fjórar og hálfa stjörnu.Í kjölfarið kom annað verkefni, nú sólóverkefni Daða, sem hét því grípandi nafni Mixophrygian (hvernig hljómar mixólýdísk-frýgísk tóntegund?). Á h