Bankaræningjar sem hnepptu fólk í gíslingu virðast hafa verið löngu horfnir á braut áður en lögregla lét til skarar skríða í bankanum.Bankaræningjarnir réðust inn í banka í bænum Sinzig í vestanverðu Þýskalandi um klukkan níu í morgun. Lögreglumenn umkringdu bankann og var á tímabili talið að nokkrir bankaræningjar og einn eða fleiri gíslar væru þar innandyra. Þeirra á meðal var bílstjóri peningaflutningabíls sem hnepptur var í gíslingu.Þegar lögreglumenn fóru inn í bankann síðdegis kom í ljós að þar var enga bankaræningja að finna. Tveir gíslar voru í peningageymslu bankans sem var að öðru leyti mannlaus.Lögreglumenn telja að bankaræningjarnir hafi horfið á braut skömmu eftir að þeir læstu gíslana inni í peningahvelfingunni. Ekki er þó ljóst hvernig þeir komust undan.