Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Flugsystur fljúga saman í hádegisverð

„Þetta er svipað og saumaklúbbur nema í staðinn fyrir að prjóna förum við út að fljúga,“ segir Auður Birna Snorradóttir ein af forsprökkum hópsins. Á heimsvísu eru konur aðeins um 6% af starfandi flugmönnum. Þó að bransinn sé karllægur segja þær Auður og Helga Sigurveig Kristjánsdóttir að þeim hafi alltaf verið vel tekið þrátt fyrir skondnar uppákomur hér og þar. Stelpurnar eiga báðar þrjú börn og Auður var einstæð móðir þegar hún hóf námið. Þær lýsa því hvað sé ólíkt með kynjunum í þessum bransa.
Flugsystur fljúga saman í hádegisverð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta