David Attenborough, náttúruunnandi og einn þekktasti sjónvarpsmaður heims, er 100 ára í dag. Í ávarpi segist hann djúpt snortinn yfir öllum þeim fjölda afmæliskveðja sem honum hafa borist.Margir telja Attenborough einn áhrifamesta mann samtíðarinnar. Hann heillaðist ungur af undrum náttúrunnar og á að baki um 70 ára feril í sjónvarpi. Þekktastur er hann fyrir náttúrulífsþættina Life on Earth eða Lífið á jörðinni sem fyrst voru sendir út 1979.Attenborough þekkir náttúruna betur en flestir og hefur á löngum ferli séð breytingar verða á henni. Í seinni tíð hefur hann orðið aðgerðasinni til verndar náttúrunni. Í dag heldur hann upp á aldarafmælið.„Ég hafði séð fyrir mér að fagna aldarafmælinu í rólegheitum en svo virðist sem ýmsir aðrir hafi aðrar hugmyndir,“ segir Attenborough í ávarpi sem Br