BOARDS OF CANADA – PROPHECY AT 1420 MHZ Loksins, loksins, loksins heyrist í skosku bræðrunum í Boards of Canada en í dag kom út lagið Prophecy At 1420 Mhz. Lagið er það fyrsta sem heyrist af væntanlegri plötu frá þeim Inferno sem áhugafólk um raftónlist hefur beðið eftir í 13 ár. MADONNA – I FEEL SO FREE Madonna er líka í raftónlistinni og sendi frá sér frábært lag fyrir stuttu sem heitir I Feel So Free. Lagið vinnur hún með tveimur meisturum úr danstónist þeim Lil Louis og Stuart Pearce (Les Rythms Digitales, Zoot Woman og fleiri) og þau fara svo sannarlega saman á klúbbinn. Lagið er tekið af væntanlegri plötu Madonnu, Confessions 2, og er með því allra besta frá henni í töluverðan tíma. KNEECAP FT. KAE TEMPEST – IRISH GOODBYE Nýja plata Kneecap, Fenian, kom að sjálfsögðu út 1. maí