Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að vopnahlé milli Bandaríkjanna og Írans væri enn í fullu gildi þrátt fyrir átök ríkjanna í gær. Bandarísk stjórnvöld lýstu því yfir í gær að þau hefðu ráðist að skotmörkum í Íran eftir að þrjú bandarísk herskip urðu fyrir árásum Írana. Ríkin kenna hvort öðru um að hafa brotið gegn vopnahléinu. Íranar segja Bandaríkjamenn hafa skotið að olíuflutningaskipi sem reyndi að komast í gegnum hafnbann en Bandaríkjamenn segja Írana hafa átt upptökin með árásum á bandaríska tundurspilla. Olíuverð sveiflaðist í dag, hækkaði í fyrstu en lækkaði síðan. Hlutabréfaverð hefur gefið eftir. Þrír særðust í eldflauga- og drónaárásum Írana á Sameinuðu arabísku furstadæmin, samkvæmt tilkynningu frá varnarmálaráðuneyti landsins.Íranar hafa komið á fót stofnun sem