Stjórn Kviku hefur boðað hluthafa til fundar í byrjun næsta mánaðar til að taka ákvörðun um arðgreiðslur. Ef hluthafar samþykkja tillögu stjórnar verður þetta önnur arðgreiðslan sem þeir fá í ár.Hluthafar samþykktu á aðalfundi í mars að greiða 1,6 milljarða í arð vegna afkomu síðasta árs. Stjórn leggur til að greiddir verði út rúmlega 10 milljarðar króna til viðbótar í arð. Ef af verður nema arðgreiðslur til hluthafa um tólf milljörðum króna í ár. Að auki vill stjórnin að bankinn geti keypt hlutabréf í bankanum af eigendum fyrir fjóra milljarða króna síðar á árinu.Stjórnin vísar til umræðu á aðalfundi í fundarboði sínu. Þá var rætt að eiginfjárstaðan væri sterk og til skoðunar að leggja til frekari arðgreiðslur. Stjórnin segir að nú sé svigrúm til að greiða úr arð og vísar þar bæði til ste