Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

11 tonn af kókaíni fundust í aðgerð Europol

Europol hefur ásamt spænskum yfirvöldum stöðvað fíkniefnaflutning um þekkta smyglleið þvert yfir Atlantshafið. Yfirvöld stöðvuðu átta skip og lögðu hald á ellefu tonn af kókaíni og 8,5 tonn af hassi í aðgerðinni sem stóð í tvær vikur í apríl. 54 voru handteknir.Aðgerðin er liður í rannsókn Europol á sífellt algengara fyrirkomulagi smyglara þar sem efnunum er siglt frá Ameríku til alþjóðlegra hafsvæða og síðan flutt í minni skip eða báta. Smyglarar flytja efni gjarnan í enn smærri báta og forðast hafnir til að komast hjá því að vekja á sér athygli. Efnin eru almennt flutt til Spánar og Portúgal og þeim svo dreift til enn fleiri landa.
11 tonn af kókaíni fundust í aðgerð Europol

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta