Foreldrar leikskólabarna standa víða frammi fyrir styttri opnunartíma, fleiri lokunardögum, flóknari gjaldskrám og hærri kostnaði fyrir fulla vistun. Þannig hafa leikskólagjöld fyrir fulla vistun, átta til átta og hálfan tíma á dag, víða hækkað verulega á kjörtímabilinu, um allt að 85 prósent.