Hjólreiðamaður var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild eftir að ekið var á hann á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í morgun. Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta.Slökkviliði barst tilkynning um að ekið hefði verið á hjólreiðamann klukkan 09:29. Í kjölfarið var einn sjúkrabíll sendur á vettvang. Lárus segir störfum slökkviliðsins á vettvangi slyssins lokið.