Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hafa víða hækkað verulega á kjörtímabilinu 2022–2026, eða um allt að 85%, að því er segir í nýju yfirliti ASÍ og BSRB um þróun leikskólaþjónustu síðastliðin fjögur ár.Í því segir að víða hafi opnunartími verið styttur, lokunardögum fjölgað auk þess sem gjaldskrár hafi orðið flóknari og kostnaður við fulla vistun hækkað.Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir að umfangsmiklar breytingar hafi verið gerðar á leikskólakerfinu á kjörtímabilinu án pólitískrar umræðu.„Við sjáum mjög svo skýran rauðan þráð hjá öllum sveitarfélögum að það er verið að skerða þjónustuna og hækka gjöldin.“Hún segir að margt félagsfólk hafi neyðst til að stytta vistunartíma fyrir börn sín, lækka starfshlutfall eða finna aðrar leiðir sem hafi áhrif á tekjur þeirra.„Það eru fjárhag