Baltasar Kormákur og Charlize Theron ætla að gera saman aðra kvikmynd. Hann leikstýrir og hún fer með aðalhlutverkið í Six Clean Kills, og bæði eru þau framleiðendur hennar.Deadline greinir frá.Kvikmyndin Six Clean Kills byggir á óútgefinni skáldsögu eftir rithöfundinn Stan Parish, en hann mun einnig skrifa handrit aðlögunarinnar. Universal Pictures framleiðir kvikmyndina. FYRRA SAMSTARF NÝTUR MIKILLA VINSÆLDA Balti leikstýrði Theron fyrir kvikmyndina Apex, sem hefur vakið töluverða lukku hjá streymisveitunni Netflix síðan hún kom út 24. apríl síðastliðinn. Í grein Deadline segir að hún hafi setið í fyrsta sæti fyrir kvikmyndir á ensku þegar hún var frumsýnd. Apex hafi síðan verið í fyrsta sætinu í tvær vikur og að áhorfið hafi aukist í annarri viku hennar í sýningu.Þá segir að Theron h