Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Flugfreyjan reyndist ekki vera með hantaveiru

Flugfreyja hjá KLM-flugfélaginu reyndist ekki vera með hantaveiru eins og grunur lék á um skeið. Þessu greindi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin frá í dag. Flugfreyjan var lögð inn á sjúkrahús þar sem hún sýndi væg sjúkdómseinkenni. Flugfreyjan var við störf í flugvél sem flaug frá Suður-Afríku. Ein þeirra sem komu um borð í flugvélina var eiginkona fyrstu manneskjunnar sem lést af völdum hantaveirunnar í skemmtiferðaskipinu Hondius. Konunni var vísað frá borði og hún flutt á sjúkrahús þar sem hún lést af völdum veirunnar næsta dag.Farþegaþota KLM. safnmynd.EPA / Ramon van Flymen
Flugfreyjan reyndist ekki vera með hantaveiru

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta