Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þrír látnir og tíu göngumanna leitað við eldfjall sem fór að gjósa

Google mapÞrír eru látnir og tíu göngumanna er saknað við eldfjallið Dukono á Halmahera-eyju í Indónesíu sem byrjaði að gjósa í dag. Öskuský frá eldgosinu nær allt að tíu kílómetra upp frá jörðu.Fólkið var í fjallgöngu við eldfjallið þrátt fyrir að svæðið hafi verið lokað síðan 17. apríl þar sem eldgos var talið líklegt.Tveir hinna látnu eru erlendir ríkisborgarar en sá þriðji er heimamaður. Ekki hefur verið greint frá þjóðerni þeirra sem enn er leitað, en upphaflega var talið að níu þeirra sem saknað var væru frá Singapore.Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um fjölda látinna og þeirra sem leitað er að.
Þrír látnir og tíu göngumanna leitað við eldfjall sem fór að gjósa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta