„Þetta eru slæm úrslit, mjög slæm, og það er ekkert hægt að fegra það,“ sagði Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, þegar hann brást við fyrstu niðurstöðum sveitarstjórnarkosninga sem fram fóru í landinu í gær.Flokkur Starmers, Verkamannaflokkurinn, tapaði miklu fylgi og hefur misst um 250 sæti í sveitarstjórnum miðað við það sem nú er búið að telja. Á sama tíma stórjókst fylgi Reform, flokks Nigels Farage, sem hefur bætt við sig yfir 360 sætum.Starmer hefur lengi sætt gagnrýni vegna starfa sinna í ríkisstjórn og staða hans þykir hafa veikst enn með slæmri útkomu flokksins. Það virtist þó ekkert fararsnið á forsætisráðherranum þegar hann hélt ávarp í morgun.Starmer sagði að úrslitin væru sársaukafull fyrir Verkamannaflokkinn og að hann axlaði ábyrgð á því. Hann sagði að næstu skref yrð