Héraðsdómur Reykjaness dæmdi Mateusz Andrezej Korrczkowski í gær til tveggja ára fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Hann var staðinn að því að reyna að smygla amfetamínbasa til landsins við komuna frá Portúgal 13. mars.Korrczkowski var með 2.000 ml af amfetamínbasa, með 60% styrkleika, á sér. Efnið var falið í tveimur flöskum í farangri hans. Maðurinn játaði sök en kvaðst ekki eiga efnin sjálfur. Hann kvaðst aðeins hafa tekið smyglið að sér gegn greiðslu. Héraðsdómur Reykjaness.RÚV / Ragnar Visage