Yara er arkitekt og hönnuður frá Líbanon og kynntist ástinni á Laugavatni. Það var ekki bara eiginmaðurinn íslenski, heldur einnig íslenskt grjót sem heillaði hana upp úr skónum. Nú vinnur Yara í stein og gerir ostaplatta og lampa úr íslensku bergi.Steinsmíði varð að nýrri iðju eftir að hún fluttist til Íslands, því heima í Líbanon hafði hún enga reynslu af því. Þó hefur hún heillast af jarðfræði alla ævi.„Þegar ég var í Kerlingafjöllum áttaði ég mig á að ég yrði að gera eitthvað með þessa fallegu steina. Mynstrin innan í þeim eru ofsalega falleg og gerólík því sem ég þekki frá Líbanon“.Heima í Grímsnesi kom Yara sér upp aðstöðu til að vinna grjótið. „Ég þarf að lesa í lögunina og finna út hvar ég geti klofið hann, án þess að hann molni. Það þarf að fara varlega og vera þolinmóð.“