Í dag verður norðan 8-15 m/s á Suðaustur - og Austurlandi en annars hægari vindur. Það má reikna með skúrum eða éljum vestast á landinu, stöku éljum norðaustantil fram eftir degi en lengst af þurrt í öðrum landshlutum. Hitinn verður á bilinu 1 til 8 stig að deginum en í kringum frostmark um landið norðaustanvert.