Að minnsta kosti 12 voru drepnir, þar af tvö börn og einn sjúkraflutningamaður, í loftárásum ísraelska hersins á Líbanon í gær samkvæmt líbanska heilbrigðisráðuneytinu.Forsætisráðherra Ísraels Benjamin Netanyahu segir Ísraela bera ábyrgð á því að hafa drepið háttsettan liðsforingja í Hezbollah í árásum á miðvikudaginn. Hann sagði að enginn hryðjuverkamaður væri óhultur fyrir árásum Ísraela.Stjórnvöld í Ísrael og Líbanon ætla að senda fulltrúa til viðræðna í Bandaríkjunum í næstu viku, samkvæmt heimildum Al Jazeera. Ísraelsher heldur áfram að skipa íbúum í suðurhluta Líbanon að yfirgefa heimili sín og sakar Hezbollah um brot á vopnahléi sem var samþykkt um miðjan apríl.Stjórnvöld í Líbanon segja Ísraelsher hafa drepið 2.700 manns frá því í byrjun mars. Ísraelski herinn segir að 17 ísraelski