Canvas-námsumsjónarkerfið liggur niðri á ný og samkvæmt erlendum miðlum hefur hópur netþrjóta sem kallast ShinyHunters lýst yfir ábyrgð á netárásunum. Nemendur Háskóla Íslands sem voru inni á síðunni þegar hún var tekin niður á ný segjast hafa fengið upp á skjáinn skilaboð frá netþrjótunum.