Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ætla að endurbyggja hluta vegar um Mikladal

Fjallvegur um Mikladal milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar er ónýtur á köflum og ráðast á í endurbyggingu á hluta hans. Verið er að ganga frá útboði. Vonast er til að verkið verði boðið út um miðjan maí og framkvæmdum ljúki næsta sumar.„Vegurinn er orðinn gamall og úr sér genginn. Burðarlagið er ónýtt og það þarf að ráðast í frekari aðgerðir heldur en þessa plástra sem við höfum verið í,“ segir Pálmi Þór Sævarsson, svæðisstjóri Vestursvæðis hjá Vegagerðinni.Vegurinn liggur milli tveggja byggðakjarna og meðalumferð um hann er á fjórða hundrað bílar á dag. Fyrir um tveimur árum var hluti vegarins endurbyggður og nú á að endurbyggja tæplega fjögurra kílómetra kafla til viðbótar í núverandi vegstæði. DUGAR Í 30-40 ÁR „Það er ekki verið að byggja algjörlega nýjan veg en það er verið að kom
Ætla að endurbyggja hluta vegar um Mikladal

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta