Í dag eru níu dagar til sveitarstjórnarkosninga. Af því tilefni var rætt við íbúa í Akraneskaupstað, níunda stærsta sveitarfélagi landsins.Íbúar nefna að margt sé gott, eins og skólarnir, tónlistarskólinn og íþróttalíf, en að víða sé komið að viðhaldi og þurfi að undirbúa bæinn fyrir áframhaldandi fjölgun.Atvinnumál eru einnig stórt áhyggjuefni. Margir íbúar sækja vinnu út fyrir Akranes, sérstaklega til höfuðborgarsvæðisins og Grundartanga. Erfitt geti verið að fá vinnu á Akranesi og þúsundir fara daglega til vinnu eða náms í Reykjavík.Umræða um sameiningu við Hvalfjarðarsveit kom upp á síðasta kjörtímabili en ekkert varð af formlegum viðræðum. Samstarf milli sveitarfélaganna er þó áfram til umræðu og þar er meðal annars rætt um rekstur bókasafns Akraness.