Stundum listagallerí, stundum virki - og stundum leikhús. Krakkar í Vesturbæ Reykjavíkur standa vörð um hús sem þau hafa sjálf byggt, sem á að rífa vegna þess að það uppfyllir ekki öryggiskröfur.Fyrir fjórum árum hófu krakkar í vesturbæ Reykjavíkur framkvæmdir. Þau viðuðu að sér timbri og ýmsu efni sem þeim var gefið og byggðu kofa. Síðan þá hefur margsinnis verið byggt við hann og kofinn hefur verið vettvangur leikja og ýmissa uppátækja í hverfinu.En kannski ekki mikið lengur.Krakkar í Vesturbæ Reykjavíkur leita allra leiða til að koma í veg fyrir að „fjölnota hús“ sem þau hafa byggt og hannað síðustu ár verði rifið. Kofinn er ekki öryggisvottað leiktæki. EKKI ÖRYGGISVOTTAÐ LEIKTÆKI „Við vorum að fá úrskurð frá Reykjavíkurborg um að við eigum að fjarlægja húsið vegna þess að þeim þykir