Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir helsta muninn á milli covid-19 og hantaveirunnar að smitleiðirnar séu mjög ólíkar. Þó að veiran geti smitast á milli fólks er talið þurfa mikla nánd og samveru til þess að smit berist.Þrír eru látnir eftir nýlega útbreiðslu veirunnar í skemmtiferðaskipinu MV Hondius. Minnst fimm til viðbótar eru smituð af veirunni.Guðrún bendir einnig á að þegar covid-19 útbreiðslan hófst vissi enginn neitt um veiruna, en hantaveiran sé þekkt veira. „Smitleiðirnar eru þekktar og þær eru aðallega frá nagdýrum en ekki á milli fólks, þó að það geti gerst eins og með þetta eina afbrigði sem þarna er í gangi.“Enn sé stutt síðan heimurinn gekk í gegnum heimsfaraldur og því ekki óeðlilegt að fólk finni fyrir ónotatilfinningu.Hún segir þetta vera ólíkt, þar sem þetta sé hópsýk