Sendiherra Danmerkur á Íslandi og framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar beittu sér bæði gegn því að umdeild grænlensk heimildarmynd yrði sýnd í Norræna húsinu í mars. Frá þessu greinir fagblað danska blaðamannasambandsins, Journalisten.Myndin, Hið hvíta gull Grænlands, var tekin úr sýningu á DR í febrúar og ritstjóri á fréttastofu DR sagði af sér. Hið hvíta gull Grænlands átti að sýna í Norræna húsinu 22. mars, og boð á sýninguna var sent danska sendiráðinu 19. mars. Skömmu síðar var sýningin tekin af dagskrá.Journalisten vitnar í frétt sinni í tölvupóstsamskipti milli Sabina Westerholm, forstjóra Norræna hússins, og Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, frá 19. mars, sem fjölmiðillinn hefur undir höndum. Um hvað fjallar myndin og hvers vegna er hún umdeild? Hið h