Það kom flatt upp á fulltrúa íslenskra hafnaryfirvalda og útgerða skemmtiferðaskipa þegar tilkynnt var síðla árs 2024 að leggja ætti 2.500 króna innviðagjald á hvern skipafarþega á meðan skipið væri í höfn hér við land. Eftir mótmæli og langt samtal var gjaldið lækkað í 1.600 krónur, en skaðinn var skeður. Bókanir hrundu, með tilheyrandi tekjutapi fyrir hafnirnar og ferðaþjónustuna. BINDUR VONIR VIÐ AÐ JAFNVÆGI VERÐI KOMIÐ Á BÓKANIR 2028 EÐA 2029 „Og við fundum það bara mjög skýrt á bókunarstöðunni og erum að súpa svolítið seyðið af því núna næstu tvö árin, þar sem að við sjáum að það eru færri bókanir,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri og hafnarstjóri Múlaþings. „En svo bindum við miklar vonir við að það muni skila sér til baka frá og með kannski 2028 eða 2029. Þá teljum vi