Reiði og sorg ríkir um alla Ástralíu vegna fimm ára stúlkubarns sem fannst látið í lok apríl. Hundruð komu saman og minntust hennar í dag. Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir morð.Snemma morguns sunnudaginn 26. apríl tilkynnti móðir stúlkunnar að hún væri horfin. Við tók fimm daga umfangsmikil leit, bæði á landi og úr lofti. Um þrjú hundruð sjálfboðaliðar tóku þátt í leitinni. Fimmtudaginn 30. apríl fannst hún látin í um fimm kílómetra fjarlægð frá staðnum sem hún sást síðast á.Hundruð komu saman um alla Ástralíu til minnast fimm ára stúlku sem fannst látin í lok apríl. Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir morð.Stúlkan, sem nú er kölluð Kumanjayi Little Baby af menningarlegum ástæðum, er af Warlpiri-ættbálki frumbyggja. Hið eiginlega nafn stúlkunnar er ekki n