Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur brugðist við fregnum af fordómafullum söngvum sem stuðningsmenn ÍBV sungu í garð Hafdísar Renötudóttur, markvarðar Vals og íslenska landsliðsins, í viðureign liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins á þriðjudag. Hafdís er samkynhneigð og snúa söngvarnir að því.ÍBV hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem félagið biður Hafdísi afsökunar. Málið er nú á borði Handknattleikssambands Íslands sem kveðst líta það alvarlegum augum.Í færslu sem Hanna Katrín birti á Facebook síðu sinni í dag fer ráðherra hörðum orðum um stuðningsmenn Vestmannaeyjaliðsins. Hún segir fordóma sem þessa ekki eiga sér stað í tómarúmi.„Mikið hljóta stuðningsmenn ÍBV, þessa öfluga íþróttafélags, að skammast sín fyrir framgöngu þeirra sem gerðu aðsúg að markmanni Vals í öðrum